Afmæli !!!

Núna í dag er ástmaðurinn 49 ára afmælisbarn og við ætlum að vera saman og hafa það huggulegt ! Við stelpurnar ætlum að byrja daginn á að elda enskan morgunverð handa afmælisbarninu, láta hann blása á öll kertin og baða hann svo í gjöfum.

Ég vil meina að afmæli séu heilög. Afmælisbarnið á að hafa það gott allan daginn og fá það sem það vill. Þetta segi ég kannksi líka vegna þess að það eru bara 3 vikur í mitt afmæli og ég vil hafa þessar reglur á hreinu þangað til !

Af veikindum mínum er bara það að segja að krabbalyfin fara illa í mig en ekki nógu illa í krabbann sjálfan, þ.e.a.s. hann er í góðum gír að koma sér ennþá betur í skrokknum mínum. Það er verið að reyna að finna einhverja lausn á þessu en gengur samt mjög hægt. Það er svona þegar maður álpast til að fá einhvern fáránlega sjaldgæfan krabba sem enginn virðist geta tæklað með einhverju. Ég hef samt eins og alltaf fulla trú á að einver brilliant lausn detti inn og allt fari í gang. Pollýanna.com !

 

Ég er samt að vera mjög þreytt og pissed á þessu heilsuleysi. Get ekki gert nein plön að ráði því ég veit aldrei hvenær líkaminn fær nóg af öllu þessu og verður veikur. Mig langar að geta gert plön fyrir sumarið með fólkinu mínu en þori það ekki því það er fátt verra en að þurfa að eyðileggja öll skemmtilegu plönin fyrir stelpunum okkar. 

 

Það er víst komið að því enn einu sinni að bíða róleg og sjá hvað gerist. Það er allavega eitthvað plan !

 

Þangað til næst, prinsessan sem ætlar að verða virkari og virkari á blogginu :)


I´m back !

Halló þið sem hafið áhuga á að lesa það sem ég hef að segja !

Eftir þó nokkuð langan tíma ákvað ég að byrja að blogga aftur um mig, það sem er að gerast í kring um mig og það sem mér finnst skipta máli.

 

Það hefur margt breyst og gerst síðan ég bloggaði síðast, ég mun segja frá einhverju af því á næstu dögum :) 

 

Þangað til næst, Rakel prinsessa sem er mætt AFTUR !


Um bloggið

Rakel Sara Magnúsdóttir

Höfundur

Rakel Sara Magnúsdóttir
Rakel Sara Magnúsdóttir
29 ára eineggja tvíburi, tveggja barna móðir, ástkona, stjúpa/vinkona, frænka, dóttir, vinkona, pælari og krabbameinssjúklingur síðustu 8 ár með 5 greiningar á bakinu en samt til í flest.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 886

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband